Hoppa að efni
Site Pilot EN 844 6132 Hringja í Site Pilot

Við hjálpum litlum fyrirtækjum að komast á netið

Site Pilot er lítið íslenskt fyrirtæki í Reykjavík. Við smíðum vefsíður fyrir fyrirtæki sem vilja finnast á netinu en hafa ekki tíma til að standa í tækninni.

Af hverju Site Pilot

Aron Bjarni stofnaði Site Pilot til að hjálpa litlum fyrirtækjum sem eru ekki með vefsíðu. Þegar fólk leitar að þjónustu byrjar það oftast á netinu. Fyrirtæki sem er ekki með vefsíðu finnst ekki, og þá fara viðskiptin annað.

Góð vefsíða gerir fyrirtækið aðgengilegt. Fólk sér hvað það gerir, hvar það er og hvernig á að hafa samband, og það skilar sér í fleiri viðskiptum.

Markmiðið er að það sé einfalt að fá vefsíðu: þú segir frá, færð fast verð og skriflegan samning, og við sjáum um afganginn. Við vinnum líka fyrir fyrirtæki sem eru þegar með vefsíðu en vilja nýja.

Hvernig við vinnum

  • Mannamál

    Þú þarft ekki að kunna neitt á vefsíður. Við útskýrum allt á einfaldan hátt.

  • Fast verð og skriflegur samningur

    Þú veist hvað er innifalið og hvað það kostar áður en vinna hefst.

  • Persónuvernd í fyrirrúmi

    Síðurnar okkar nota engar rakningarkökur og hverri síðu fylgir persónuverndarstefna.

Eigum við að spjalla?

Hringdu eða sendu línu og segðu okkur frá fyrirtækinu þínu.